Færsluflokkur: Matur og drykkur

Thule Jólabjór besti bjórinn í Jólabjórsmakki 2017

Bjórsmakkarinn smakkaði nokkra jólabjóra í ár. Thule jólabjór í lítilli dós og svo í litlu gleri.

 

Seinustu tvö ár hefur mér fundist hann betri í dósinni en núna var hann betri í gleri. Reyndar var þessi í dósinni ekki alveg hundrað prósent orðinn kaldur. Það er ekki góður kælir í Mjóddinni. Smakkarinn setur kannski afganginn út á svalir því það er svo kalt úti. Finnst best þegar það snjóar og ég get sett bjórana í snjóinn sem kemur á svalirnar.

 

En hvað um það. Þegar Smakkarinn metur jólabjór er tvennt sem þarf að meta. Í fyrsta lagi, er bjórinn góður fyllerísbjór. Svarið er einfalt. Já. Nógu léttur og bragðgóður í það.

 

Í öðru lagi. Er hægt að hella honum í glas og njóta hans, jafnvel með mat. Svarið er ennþá einfaldara. Uuu já. Hellti honum í glas og sötraði hann með kjötbollum í brúnni, rugl góður.

 

Jæja Bjórsmakkarinn er alveg hundrað prósent viss í sinni sök. Thule Jólabjórinn er bestur í ár enn og aftur, og í þetta skiptið tek ég hann í gleri takk fyrir pent.

Fimm bjórar af fimm. Stjörnugjöfin sko, hehe :-) drakk fleiri en fimm

 

Jólakveðja,

Bjórsmakkarinn. 

Ekki alveg nógu kaldur


Höfundur

Bjórsmakkarinn
Bjórsmakkarinn

Betri er einn bjór í hendi en tveir í klósti.

Enginn verður óbarinn barþjónn.

Þeir sletta bjórnum sem eiga hann.

Mjólk er bjór.

Brennt barn forðast bjórinn.

 

Áfram Liverpool.

Færsluflokkar

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 3498

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband